Sérstaða íslenskra álvera
Helena Sigurðardóttir 1983- | Háskóli Íslands
Þessi ritgerð fjallar um að þróa hentuga aðferð til að auka þekkingu á sérstöðu íslenskra álvera og rannsaka samkeppnishæfi þeirra. Notast er við AHP aðferð til að staðsetja Ísland miðað við fjórtán önnur lönd. Byggt er á eftirfarandi viðmiðum: orka, súrál, aðgengi að kolum, launakostnaður, losun CO2, öryggi á vinnustað, aðgengi að vinnuafli og aðgengi að mörkuðum. Öll viðmið og valkostir eru metin með AHP aðferðinni og eru valkostir bornir saman innan hvers viðmiðs. Út frá vægi viðmiða má reikna heildareinkunn hvers lands. Þá er gerð næmniathugun þar sem vægi viðmiða er breytt. Sterkust er staða Íslands hvað varðar orku og losun CO2 auk þess sem staðan er góð hvað varðar launakostnað og aðgengi að mörkuðum. Aðgengi Íslands að hráefni til álframleiðslu getur ekki talist gott en það dregur stöðu Íslands niður. Þá er öryggi á vinnustað og aðgengi að vinnuafli ekki jafn gott á Íslandi og í samanburðarlöndunum. Í ritgerðinni kemur fram að álframleiðsla á Íslandi hefur ákveðna kosti og galla sem vega upp á móti hvor öðrum. Niðurstaðan er sú að þegar öll viðmið eru tekin saman lendir Ísland í sjöunda sæti af þeim fimmtán löndum sem borin eru saman. Verður það að teljast nokkuð hagstæð niðurstaða fyrir Ísland sem álframleiðanda.
Show more [+] Less [-]Orkuveita Reykjavíkur
Show more [+] Less [-]Bibliographic information
This bibliographic record has been provided by University of Iceland