Heimamenn á Fljótsdalshéraði: Viðhorf til uppbyggingar í ferðaþjónustu og áhrif ferðamennsku á þeirra lífsgæði.
2019
Kristjana Hvönn Þrastardóttir 1993- | Háskóli Íslands
Þegar uppbygging ferðaþjónustu á sér stað er mikilvægt að taka tillit til heimamanna því ef uppbygging á að vera farsæl til langs tíma þá er þýðingarmikið að heimamenn og ferðaþjónustuaðilar séu saman í liði. Ferðamennska getur haft mikil áhrif á samfélög og lífsgæði þeirra sem þar búa. Markmið þeirrar rannsóknar sem hér er til umfjöllunar var að kanna viðhorf heimamanna á Fljótsdalshéraði til uppbyggingar ferðaþjónustu og hvernig ferðamennska í héraðinu hefur áhrif á þá. Jafnframt voru könnuð viðhorf sama hóps til nýs áfangastaðar sem er í uppbyggingu. Um er að ræða baðstað sem ber heitið Vök (Vök Baths). Unnin var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við þrjá heimamenn. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að heimamenn eru jákvæðir gagnvart uppbyggingu ferðaþjónustu og sjá enn fleiri tækifæri á svæðinu til frekari uppbyggingar. Einnig kom í ljós ferðamennska hefur áhrif á lífsgæði viðmælenda með ýmsum hætti.
Show more [+] Less [-]Bibliographic information
This bibliographic record has been provided by University of Iceland