Maërl Beds in the Arctic: Distribution Analysis in Icelandic Waters
2024
Urður Ýrr Brynjólfsdóttir 1994- | Háskóli Íslands
Little is known about the distribution or ecology of maërl beds in Iceland. Maërl beds host high biodiversity and create habitats for various flora and fauna, some of which are rare or economically important, and play an important role in carbon sequestration. Individual maërl grow very slowly and can become hundreds of years old. Their slow growth makes the beds vulnerable to anthropogenic threats, such as dredging, extraction, bottom trawling, pollution, and climate change. To effectively manage and conserve the habitat, it is necessary to map their distribution. When the distribution is known it is possible to identify threats and effects from human activities and create a conservation plan accordingly. This study develops a species distribution model for maërl in Icelandic waters and identifies important factors influencing their distribution. The analysis uses and compares four different modeling algorithms: GAM, RF, BRT, and MaxEnt. Data on presence and absence were collected from scientific surveys, literature, and interviews. Variables considered include bathymetry, topography, temperature, salinity, light availability, exposure, and nutrient concentration. The final ensemble model predicts high habitat suitability for maërl in the Westfjords, southern Húnaflói, and some areas in Breiðafjörður.
Show more [+] Less [-]Fátt er vitað um dreifingu eða vistfræði kóralþörungabeða við Íslandsstrendur. Kóralþörungar binda kolefni og skapa búsvæði fyrir fjölbreytt dýra- og plöntulíf, sem sumt er fáséð eða mikilvægt fyrir íslenskan efnahag. Kóralþörungar vaxa hægt og geta lifað í hundruði ára, en þeir eru viðkvæmir gagnvart raski af mannavöldum, svo sem vegna botnvarpa, brottnámi, mengun eða loftslagsbreytinga. Til að vernda og stýra afkomu þessara búsvæða þarf að kortleggja dreifingu þeirra. Þegar dreifingin er þekkt er hægt að gera grein fyrir mögulegum áhættuþáttum og búa til viðeigandi verndaráætlanir. Þessi rannsókn þróar dreifingarlíkan fyrir kóralþörunga við Íslandsstrendur og ber kennsl á umhverfisþætti sem kunna að hafa áhrif á dreifingu þeirra. Í rannsókninni er notast við fjögur ólík líkön til að spá fyrir um dreifingu kóralþörunga: GAM, RF, BRT og MaxEnt. Niðurstöður líkananna voru bornar saman og sameinaðar til að búa til lokalíkanið. Gögn um staðsetningu kóralþörunga var safnað frá útgefnu efni, vísindakönnunum og viðtölum við kafara. Skýringarþættir sem teknir eru til greina í rannsókninni eru meðal annars dýpt, landslag sjávarbotns, hitastig, selta, sólarljós, skjól og styrkur ýmissa næringarefna. Lokalíkanið spáir því að umhverfisþættir við Vestfirði, syðri Húnaflóa og á sumum svæðum í Breiðafirði henti vel fyrir kóralþörunga.
Show more [+] Less [-]Rannís og Hafrannsóknarstofnun
Show more [+] Less [-]Bibliographic information
This bibliographic record has been provided by University of Iceland