Er hægt að reikna með heilbrigðri skynsemi gosferðamanna? Áhættuskynjun og undirbúningur ferðamanna við eldgosin við Fagradalsfjall
2024
Snædís Ólafía Einarsdóttir 1995- | Háskóli Íslands
Áhugi á eldfjallaferðamennsku hefur farið ört vaxandi síðustu ár, það má rekja þessa fjölgun til eldgosanna á Reykjanesskaga. Frá árinu 2021 hefur gosið fjórum sinnum á svæðinu og ekki er gert ráð fyrir því að virknin dvíni á næstunni en jarðfræðingar telja að Ísland sé nú komið á eldgosatímabil sem mun endast næstu 200-400 árin. Í þessari rannsókn er markmiðið að skoða eldfjallaferðamennsku á Íslandi og kanna aðdráttaraflið, áhættuskynjun og undirbúning ferðamanna í tengslum við göngur að eldgosinu við Fagradalsfjall. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og byggja niðurstöður á þremur viðtölum sem tekin voru við Íslendinga sem höfðu gengið að eldgosunum. Niðurstöður úr rannsókninni sýna að ævintýraþráin og stórfengleg upplifunin laðar ferðamenn að eldgosum. Ferðamenn skynja áhættur misvel og hefur undirbúningur og reynsla áhrif á skynjunina, upplýsingaöflun er gríðarlega mikilvægur undirbúningur áður en farið er af stað í ferðalagið. Með góðum undirbúningi eru ferðamenn líklegri til að hafa næmari áhættuskynjun.
Show more [+] Less [-]Interest in volcano tourism has been growing rapidly in the recent years, this increase can be connected to the volcanic eruptions in Reykjanes Peninsula. Since 2021, it has erupted four times in the area and it‘s not expected that the activity will subside in the near future. Geologists believe that Iceland has now entered a period of volcanic eruptions that will last for the next 200-400 years. In this research, the aim is to examine volcano tourism in Iceland and find out what it is that attracts tourist to the volcanoes, what risk perceptions tourists have and preparation of tourists in relation to hiking to the volcanic eruption at Fagradalsfjall. A qualitative research method was used and results are based on three interviews that were conducted with Icelanders who had walked to the volcanic eruptions. The results of the study show that the desire for adventure and the spectacular experience attract tourists to volcanic eruptions. Travellers perceive risks differently, and preparation and experience affect the perception, gathering information is an extremely important preparation before wandering off towards the natural disaster. With good preparation, tourists are more likely to have a more attuned risk perception.
Show more [+] Less [-]Bibliographic information
This bibliographic record has been provided by University of Iceland