Námsval nemenda í menntaskólastærðfræði með tilliti til kyns og kerfisbreytinga
2024
Nanna Kristjánsdóttir 2001- | Háskóli Íslands
Námsval nemenda í stærðfræðiáföngum í Menntaskólanum við Hamrahlíð var rannsakað með tölfræðilegum aðferðum, með tilliti til kyns og annarra breyta, fyrir nemendur sem innrituðust á haustönn 2014, 2015, 2016 og 2018. Sambærileg rannsókn var framkvæmd árið 2009 fyrir nemendur sem innrituðust 2004 og 2005. Síðan þá hafa verið gerðar ýmsar veigamiklar breytingar á menntaskólakerfinu sem geta haft ólík áhrif á námsval. Tvíkosta aðhvarfsgreiningu var beitt sem og samanburði á einkunnum. Í ljós kom að kyn hafði marktækt samband við val á áfanga, þar sem stúlkur eru ólíklegri til að velja stærðfræðiáfanga á efri hæfniþrepum. Þessar niðurstöður eru svipaðar niðurstöðum fyrri rannsóknarinnar. Helsta breytingin frá fyrri rannsókn er sú að lágar einkunnir úr fyrri áföngum aftra stúlkum síður í vali á áföngum á efsta hæfniþrepi. Hlutfall stúlkna sem innritast í verkfræði- og raungreinar í háskóla hefur þó lítið breyst frá aldamótum og til dagsins í dag.
Afficher plus [+] Moins [-]Informations bibliographiques
Cette notice bibliographique a été fournie par University of Iceland
Découvrez la collection de ce fournisseur de données dans AGRIS